Það er gaman að vera ferðafíkill þegar vart líður dagur án þess að flugfélögin bjóði ýmis tilboð á ferðum sínum. Svo er staðan nú því í gærkvöldi tilkynnti Iceland Express um sölu tilboðsferða frá hádegi í dag. Í morgun barst svo tilkynning um tilboð Icelandair sem gilda frá og með morgundeginum.
Hófst sala tilboðsferða Iceland Express í dag og bjóðast þar fargjöld á 11.900 til Evrópu og 22.900 til New York og Boston.
Keppinauturinn Icelandair kynnti þann 22. ágúst svokölluð hraðtilboð til Washington, Osló, Brussel og Halifax og kynnir nú ný hraðtilboð til London, Helsinki, Frankfurt og Minneapolis. Þau tilboð eru þó ekki í boði fyrr en á miðnætti í kvöld og í sólarhring á eftir.
Mest er um vert að tilboð Icelandair til London, sem er helsti áfangastaður Íslendinga að Kaupmannahöfn frátalinni, er þrjú þúsund krónum dýrara en tilboð Iceland Express til sömu borgar.
Sex þúsund króna munur er einfaldlega farinn að telja í veskjum margra og ekki síst ef fjölskylda eða fleiri ferðast saman.
Heimasíða Iceland Express hér.
Heimasíða Icelandair hér.






