Tíðindi

Hraðtilboð sem eru vart þess virði

  22/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Flugfélagið Icelandair býður nú næstu 24 stundirnar hraðtilboð til fjögurra áfangastaða sinna erlendis. Er þar um að ræða Washington í Bandaríkjunum, Halifax í Kanada og Brussel og Osló í Evrópu. Ekki er þó allt sem sýnist; munar aðeins þúsundköllum á tilboðunum og hefðbundnu verði.

Hefst sala ferðanna á miðnætti en sérstaklega er kannski vert að gefa gaum tilboðinu til Washington því hægt er að bóka ferðina alveg fram til 13. desember og því hægt að taka inn jólastemmningu í höfuðborg Bandaríkjanna.

Tilboðsverðið til Washington er þó lítið að rokka. Fararheill.is finnur þó fargjald til Washington og til baka í desember fyrir 47.250 krónur þannig að hraðtilboðið upp á 44.700 báðar leiðir er kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Sömuleiðis fær hraðtilboð Icelandair til Halifax í Kanada enga toppeinkunn. Hraðtilboðið hljóðar up á 47.700 krónur báðar leiðir frá 8. september til 17. október en Fararheill.is finnur fargjöld þennan sama tíma lægst á 50.060 krónur.

Til Brussel í Belgíu er tilboðsverð 30.200 og verður að fljúga milli 2. og 26. september. Á vef flugfélagsins má meðal annars finna hefðbundin fargjöld þangað þennan tíma á 30.590 krónur.

Að síðustu eru í boði flugferðir á tilboði til Osló í Noregi. Báðar leiðir á hraðtilboði á 28.400 krónur og hægt að fljúga frá 23. september og fram til 16. desember. Sem er frábært fyrir fólk í jólagjafahugleiðingum en Osló er jú dýrasta borg heim og íslenska krónan aldrei veikari en þar. Aftur er svokallað tilboð í daprari kantinum. Fararheill.is finnur hefðbundin fargjöld lægst 29.730 í október á vef flugfélagsins.

Heimasíða Icelandair hér.