Líklega er ekki hlaupið að því að fá leyfi til að senda nokkrar milljónir króna úr landi vegna kaupa á fasteignum erlendis. Sem er synd því tíminn til að gera góð kaup á fasteignum á Spáni og Portúgal er núna.

Bærinn Altea er ekki langt frá Benídorm á Spáni. Þar hefur íbúðaverð lækkað um 40 prósent

Bærinn Altea er ekki langt frá Benídorm á Spáni. Þar hefur íbúðaverð lækkað um 40 prósent

Það er niðurstaða tveggja greina sem birst hafa síðustu dægrin í dagblöðunum Sunday Times og Vanguardia. Í báðum er fjallað um þá stöðu að þrátt fyrir feykilegt efnahagshrun á Spáni, tilkomið að hluta vegna offjárfestingar í  ferðaþjónustu, hefur verðlag á fasteignamarkaði á Spáni ekki lækkað ýkja mikið fram til þessa.

Þetta helgast fyrst og fremst af því að fram til ársins 2009 hafði meðalverð á fasteign við spænska sólarströnd hækkað um 140 prósent á tíu árum samkvæmt útreikningum spænskra stjórnvalda. Margir Spánverjar nutu mjög góðs af því og þeir sem enn áttu, og eiga, eignir á eftirsóttum stöðum hafa ekki viljað sætta sig við að fá allt í einu mun lægra verð en áður.

Hefur það hingað til gengið eftir en nú er að renna upp ljós fyrir þeim flestum að ástandið í landinu mun ekki batna næstu árin og að þeir erlendu aðilar sem áhuga hafa að kaupa vilja ekki greiða sama verð fyrir eignir og áður var. Þeir hafa því ekkert val lengur margir hverjir.

Er nú hægt að kaupa íbúðir við fínustu strendur landsins á 40 til 50 prósent lægra verði en verið hefur og munar um minna. Ágætar tveggja herbergja íbúðir nálægt vinsælum stöðum eins og Marbella á Costa del Sol eða Lloret de Mar á Costa Brava fást nú á 22 til 30 milljónir íslenskra króna en hending var að finna eignir á þeim slóðum undir 40 milljónum fyrir ekki svo löngu síðan. Sömuleiðis er nú aftur hægt að kaupa fínar íbúðir og jafnvel smærri raðhús á lítt þekktari stöðum fjær ströndinni vel undir 20 milljónum króna.

Sama staða er uppi á teningnum á stöðum sem eru vinsælir meðal Íslendinga. Í bænum Torrevieja sjást nú orðið margar eignir til sölu vel undir tíu milljónum íslenskra króna en lítið hefur farið fyrir það lágum upphæðum á eignum síðustu fimm árin eða svo. Sérstaklega er hægt að gera góð kaup ef eignin er í eigu banka eða fjárfestingarfélags og ekki hika við að prútta út í eitt. Nóg er af eignunum til sölu.

Engin þörf er á að flýta sér því þessi þróun er rétt að hefjast. Skóinn mun kreppa áfram að Spánverjum og þeim fyrirtækjum þar í landi sem reist hafa þúsundir íbúða síðustu árin og standa enn margar auðar. Að sama skapi er lægð enn í Evrópu og fáir þar tilbúnir að greiða miklar fúlgur lengur fyrir smá paradís við spænska strönd.

Hið sama er uppi á teningnum í Portúgal þó þar hafi fjárfestingarfélög ekki byggt jafn mikið og á Spáni. Á Algarve ströndinni giska fróðir á að verðlag sé 30 prósent lægra nú en árið 2008 og fari lækkandi.