Fyrsta áætlunarflug Icelandair til Denver borgar í Kolóradófylki í Bandaríkjunum er orðin staðreynd. Þar með opnast íslenskum ferðalöngum ýmsar nýjar leiðir til ferðalaga.
Mun Icelandair eftirleiðis bjóða flug fjórum sinnum í viku til og frá Denver en sérstök Íslandskynning fer fram í borginni um næstu helgi vegna þessara tíðinda og í henni tekur þátt Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra.
Er þetta níundi áfangastaður Icelandair í vesturheimi og lausleg leit á vef flugfélagsins leiðir í ljós að vel hefur selst af sætum því fargjöld á ódýrasta farrými eru mikið til uppseld. Þannig verður vart komist fram og aftur í júní og júlí undir 200 þúsund krónum samkvæmt vef Icelandair nú. Það hríðfellur þó um miðjan ágúst og finnast sæti ódýrust 14. til 26. ágúst á 104 þúsund krónur rúmar.
Eins og Fararheill hefur greint frá er ekki aðeins fyrsta flokks fjalllendi og náttúra í Denver og nágrenni heldur er líka þaðan komist ódýrt áfram með Frontier lágfargjaldaflugfélaginu sem hefur höfuðstöðvar sínar í Denver. Frontier býður marga fína pakka áfram í Bandaríkjunum ellegar til Karabíska eða Mið-Ameríku.







