Tíðindi

Burt af klaka fyrir 14.900 krónur

  10/05/2012No Comments

Nýtt og ferskt hraðtilboð Icelandair hefur séð dagsins ljós sem þýðir að næstu 24 stundir er hægt að komast burt af klakanum næstu tvo mánuði eða svo fyrir 14.900 krónur aðra leiðina.

Hraðtilboð í sólarhring en gefa færi að komast í sólina í Evrópu fram í júlí

Um er að ræða tilboð til London, Osló, Gautaborgar og Brussel og gilda þau fyrir flug í maí og júní. Reyndar er í boði að fljúga til London og Brussel á þessu verði frá byrjun júní fram í byrjun júlí en frá maí og fram til júní til Norðurlandanna.

Ekki gleyma að það er með því að grípa slík tilboð sem hægt er að komast mun ódýrar út í heim en frá Íslandi enda ferðir í boði frá London töluvert fleiri en frá okkar ágæta landi.

Nánar hér.