Bið verður á að hinn nýi og glæsilegi Brandenburg flugvöllur í Berlín opni fyrir umferð. Sá átti að taka til starfa í byrjun júní en aldrei þessu vant hafa hinir stundvísu og kraftmiklu Þjóðverjarar klúðrað málum.
Ekki hefur verið gefið upp hvenær til standi að opna flugvöllinn nýja sem á að leysa miklar örtraðir á flugvöllunum í Schonefeld og Tegel. Nú er ljóst að lætin á þeim flugvöllum verða öllu meiri en ella þar sem bæði Airberlin og Lufthansa höfðu fyrirhugað nokkra fjölgun ferða frá og með tilkomu hins nýja Brandenburg.
Íslenskir ferðalangar til Berlín ættu því að hafa í huga í sumar að tafir geta orðið á afgreiðslu farþega í millilandaflugi meðan ekki leysist úr.






