Ferðalangar til London næstu misserin og árin geta nú plantað nýjum áfangastað við forvitnilega staði í borginni en svokallaður Ólympíuturn hefur nú verið formlega afhjúpaður. Sá er stærsti skúlptúr í Bretlandi öllu eða tæplega 115 metra hár.

Tæplega 115 metra Ólympíuturninn verður opnaður almenningi meðan á Ólympíuleikunum í London stendur en síðan lokar aftur í tvö ár
Skúlptúrinn er óreglulegur turn á svæði því í Stratford í London sem fengið hefur nafnið Ólympíuvangur en sem kunnugt er hefjast Ólympíuleikarnir í borginni þann 28.júlí næstkomandi.
Og það er ekki fyrr en þá sem turninn verður opnaður fyrir umferð gesta en hægt verður að príla upp mannvirkið en tveir útsýnispallar eru á turninum. Þangað verður líka komist með lyftu fyrir þá sem ekki nenna prílinu. Vitaskuld verður þar veitingastaður líka.
Turninn verður þó aðeins opinn meðan á leikunum stendur og lokar síðan á nýjan leik næstu tvö árin. Er það ekki fyrr en sumarið 2014 sem Bretar ætla að opna upp á gátt Ólympíuvang á nýjan leik en hugmyndin er að þau mannvirki sem reist hafa verið vegna Ólympíuleikanna nýtist íbúum að svæðinu í kjölfarið.
Ekki er alveg frítt að fá að toppa Ólympíuturninn í sumar. Miði fyrir einn fullorðinn kostar rúmar þrjú þúsund íslenskar krónur.






