Allir flugfarþegar kannast mætavel við þá ábendingu um borð að vinsamlegast slökkva á öllum farsímum meðan á flugi stendur. Á því er engin þörf mikið lengur hjá flugfélögunum Virgin, Emirates, Lufthansa og að hluta til hjá British Airways.

Farsímasamband verður í boði í öllum vélum Virgin flugfélagsins næsta vetur en ekki er víst að allir kjósi farsímasamband í háloftunum.
Þessi flugfélög bjóða, eða munu bjóða innan tíðar, farþegum sínum að brúka farsíma sína skammlaust og rabba við vini og vandamenn eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Það er semsagt farið að bjóða ekki aðeins netaðgang um borð víða hjá stærri flugfélögum heldur og líka aðgang að farsímakerfi. Það er vitaskuld ekkert ókeypis að hringja úr háloftunum en það mun væntanlega ekki koma í veg fyrir að ákveðnir aðilar gaspri í síma sinn lon og don. Sérstaklega munu væntanlega farþegar í viðskiptaerindum nýta sér slíka þjónustu.
Þá vaknar spurningin um næði. Hefur farþegi rétt á að blaðra stanslítið í síma ef það truflar sessunautinn eða aðra um borð? Verður farið að afmarka sérstök sæti fyrir símaglaða? Verða aðrir kannski að greiða hærra verð fyrir sæti með næði?
Farsímaþjónustan er ekki enn svo útbreidd að þetta sé orðið vandamál en engan speking þarf til að sjá fyrir að blaðurskjóðan í sætinu við hliðina getur jafn auðveldlega farið í taugarnar á samferðafólki sínu og sá sem malar í síma í kvikmynda- eða leikhúsi. Sem sumum finnst næsta sjálfsagt.







