Ritstjórn hefur um tíma haft spurnir af því að ekki gangi alltaf smurt að nota íslensk kreditkort erlendis eða til að greiða fyrir þjónustu í öðrum löndum gegnum vefinn. Nokkrir aðilar hafa bent á að sérstaklega sé þetta vandamál þegar greiða eigi fyrir bókanir með lestum víða í Evrópu.
Skammt er síðan tveimur Íslendingum gekk ekki með tveimur mismunandi Visa kreditkortum að panta og greiða fyrir miða með lest frá London til Brussel. Ritstjórn þekkir líka dæmi að íslensk kort dugi ekki til kaupa á lestarmiðum í Svíþjóð og sama hefur komið upp hjá rútu- og lestarfyrirtækjum á Spáni. Kortunum sé annaðhvort hafnað strax ellegar er ekki hægt að halda áfram með bókun þegar íslenskt kortanúmer er gefið upp.
Fararheill forvitnaðist hjá Valitor um hugsanlegar orsakir en þar á bæ kannast menn ekki við sérstök vandamál þessu tengt. Reglur Visa kveða á um að ekki megi mismuna korthöfum neins staðar í heiminum.
Hins vegar gæti skýringin legið í að umræddir söluaðilar geri kröfur um svokallaða Visa-vottun. Það á að auka enn frekar öryggi kortaviðskipta en þegar er orðið og sífellt fleiri söluaðilar fara fram á slíka vottun í netviðskiptum.
Hvetur Valitor fólk til að verða sér úti um slíka vottun sem fæst gegnum skráningu á vef Valitor hér og tekur skamma stund.







