Wow Air býður nú til miðnættis í kvöld tilboðsferð á flugi til borganna París og London nú i júní en það er einmitt sami mánuður og starfsemi hins nýja flugfélags fer í gang. Prís aðra leiðina 13.900 krónur.

París er ekki bara rómantísk og frábær heldur og skemmtileg. Sérstaklega á Segway hjólum. Mynd Ruben Thomas
Þetta gefur landsmönnum færi á að sleikja sólina í París í júní og fljúga heim aftur fyrir 27.800 krónur í heildina. Júní er einmitt þægilegur tími í borginni eða áður en hækkandi hitar fara raunverulega að gera mönnum lífið leitt en sú er stundum raunin í júlí og ágúst í París.
Sömuleiðis er hægt að finna flug til baka frá London fyrir 12.900 krónur og þannig fram og aftur fyrir 26.800 krónur. Kjaftfullt er að gera í London þennan tíma að ógleymdu demantsafmæli Bretadrottningar í byrjun mánaðarins. Þannig er ekki dapurt að smella sér inn í Tate Modern nýlistasafnið og berja augum 70 verk eftir hinn geysivinsæla Damien Hirst.
Takmarkaður fjöldi sæta á tilboði Wow til beggja borga. Heimasíða þeirra hér.






