Hér á landi er ekki haldið sérstaklega utan um hversu margir Íslendingar verða fyrir árásum og ránum á ferðalögum sínum erlendis eða hvar slíkt gerist helst. Er þó vitað að allmargir hafa orðið fyrir innbrotum og eða minniháttar þjófnuðum gegnum tíðina.
Þess vegna vakti nýlega úttekt kanadíska fjölmiðilsins CBC News athygli ritstjórnar Fararheill en þeir hafa tekið saman þær opinberu tölur sem þar fást um þjófnaði, árásir og dráp á kanadískum ferðamönnum um víða veröld.
Ekki svo að skilja að Kanadamenn og Íslendingar þvælist mikið um á sömu stöðunum. Það gera þeir í raun ekki en með það í huga að meðal Kanadamaður er næpuhvítur eins og Íslendingurinn, að gróft reiknað er meðal Kanadamaður með tekjur svipaðar og meðal Íslendingurinn og eyðir líklega svipuðum upphæðum á ferðalögum er kannski til fráleitari hlutur en skoða hvað niðurstöður CBC sýndu fram á.
Merkilegt nokk er það Kína sem er hættulegasta landið til heimsóknar síðastliðin tíu ár. Þar í landi hafa átta af hverjum hundrað þúsund Kanadamönnum orðið fyrir árásum og/eða þjófnuðum. Þar næst kemur Jamaíka þar sem 5,3 einstaklingar af hundrað þúsund hafa orðið fyrir árásum. Þá kemur röðin að Mexíkó. Þar verða þrír af hverjum hundrað þúsund ferðamönnum fyrir miska eða svipaður fjöldi Kanadamanna og verður fyrir slíku í Japan og Ástralíu.
Fyrsta Evrópulandið á listanum þar sem Kanadamenn hitta helst fyrir glæpahneigða einstaklinga er í Grikklandi en þar er ráðist á hverja tvo Kanadamenn af hverjum hundrað þúsund. Á Kúbu og í Dóminikanska lýðveldinu er hlutfallið örlitlu lægra.






