Tíðindi

Ekki taka mig alveg í skraufþurrt …….

  14/05/2012No Comments

Þau eru vissulega fá en þó til fyrirtækin sem sleppa alfarið að bulla yfirborðs- og klisjukennda steypu í auglýsingum sínum og gefa fólki hlutina á mannamáli. Það er frískandi í meira lagi og slíkar auglýsingar líklega sterkari en allar þessar hefðbundnu.

Frískandi auglýsing á mannamáli frá Southwest flugfélaginu vestanhafs. Þetta skítvirkar

Flugfélagið Southwest í Bandaríkjunum er eitt þeirra sem brúkar og birtir óhefðbundnar auglýsingar og hafa gert lengi. Sú nýjasta sem birtist í nokkrum stærri fjölmiðlum fyrir helgina hefur vakið mikla athygli í netheimum enda fer þar fátt milli mála.

Slagorð þeirrar auglýsingar er „Don´t #$*!% Me Over“ sem gróflega gæti útlagst Ekki taka mig alveg í skraufþurrt…… á íslenskunni.

Þar er vísað til þess að velflest flugfélög heims bæta sífellt á og hækka ýmis aukagjöld en Southwest gerir ekkert slíkt þó lágfargjaldaflugfélag sé. Þvert á móti eru engar hömlur á neinu þegar flogið er með félaginu; næsta ótakmarkaður farangur, frjálst sætaval, engin breytingakostnaður, ekkert gjald fyrir snakk og gos og svo framvegis.

Enginn skal efast um að slík hreinskilni virki því Southwest er á tiltölulega skömmum tíma orðið eitt helsta flugfélag Bandaríkjanna og er þó samkeppnin þar mikil og grimm.

Því fer fjarri að þetta sé fyrsta auglýsing flugfélagsins sem vekur athygli. Þær eru hver annarri skemmtilegri eins og neðangreind dæmi sýna.