Tíðindi

Myanmar að galopnast ferðamönnum

  14/05/2012No Comments

Hingað til hefur það ekki verið frámunalega auðvelt að ferðast til Myanmar, áður Burma, fyrir Jón Jónsson ferðamann. Boð og bönn hafa verið við ferðalögum þegna flestra landa þangað lengi vel og alls kyns pappíra, fjármuni og tíma þurft til fá oggupons leyfi til að spássera í borgum á borð við Yangon eða Mandalay.

Hið forboðna land Myanmar er nú að opnast ferðafólki upp á gátt en staðurinn hefur mikið til verið lokaður af um árabil

Nú er öldin önnur þó enn ráði þar ríkjum sama herforingjastjórn og hefur í fjölda ára níðst á sínu eigin fólki og hvers yfirmenn hafa mokað seðlum í eigin vasa á kostnað hins almenna borgara.

Fregnir bárust af því að fyrir helgi hafi forseti landsins, U Thein Sein, sótt formlega um aðild Myanmar að Ferðamálaráði Sameinuðu þjóðanna, UNWTO, en fyrr í vetur var flestum helstu takmörkunum við ferðalögum til landsins aflétt.

Virðist forsetinn loks eftir ár og daga áttað sig á að ferðaiðnaður er peningavél fyrir lönd á borð við Myanmar og þarf ekki að fara lengra en til nágrannalandsins Tælands til að átta sig á því. Ferðaþjónusta þar nemur hvorki meira né minna en rúmlega sex prósentum af vergri landsframleiðslu á ársgrundvelli. Það er reyndar svipað hlutfall og hér á Fróni en munurinn sá að í Tælandi búa 70 milljónir manns meðan klakinn okkar hýsir aðeins rúmlega 300 þúsund.

Í öllu falli er morgunljóst að Myanmar verður næsti heiti staðurinn í Asíu. Víða í kring hefur fjöldaferðamennska haft of mikil neikvæð áhrif og þúsundir þyrstir í að komast í snert við land sem hefur verið lokað ferðamönnum um árabil.