Tíðindi

Engin röð fyrir ríka á Heathrow

  14/05/2012No Comments

Áttu 365 þúsund krónur sem þú mátt missa án þess að verða þess mikið var? Þá er aldeilis vel tekið á móti þér á alþjóðaflugvellinum Heathrow í London en fyrir þann pening færðu flýtimeðferð gegnum vegabréfsskoðun og þarft ekkert að bíða í röð með hinum plebbunum.

Bið á Heathrow er ekkert nýtt enda völlurinn kominn til ára sinna. En nokkrir hundrað þúsund kallar kaupa þér leið framhjá öllum leiðindum.

Alltaf gott að eiga pening á lager og ekki síst sé förinni heitið til London. Þar verður alla jafna fólk að bíða töluverðan tíma í biðröð eftir lendingu og í biðröð fyrir brottför eftir öryggisleit og vegabréfaskoðun og hvað veit maður.

Þó ekki ef þú veifar peningabúnti. Fyrir 1.800 pund, kringum 365 þúsund íslenskar krónur, geturðu sleppt öllum þeim leiðindum og þarft hvorki að hanga í röð með almúganum né fara úr skónum eða taka af þér beltið. Sú upphæð færir þér persónulegan breskan lögreglumann sem fylgir þér flýtileið út í vél og eina stoppið er meðan sérstakur tollvörður gluggar augnablik í vegabréfið.

Icelandair er eina íslenska flugfélagið sem flýgur til Heathrow flugvallar en ekki er alveg útilokað að slík „þjónusta“ verði einnig í boði á Gatwick flugvelli áður en langt um líður að því er fram kemur í breska blaðinu Times.