Því er haldið fram á vef Pressunnar í dag að frönsk stjórnvöld hafi bannað fólki að baða sig á ströndum frönsku rivíerunar þar sem hugsanlega hafi sést til hákarls. Þetta er algjört kjaftæði og della út í eitt.

Hér er víst bannað að baða sig samkvæmt nýrri fregn Pressunnar. Líklegt má telja að baðbann við Miðjarðarhafsströnd Frakklands væri fréttaefni víða en svo er ekki enda fréttin rugl eitt
Ekkert um slíkt finnst á vef franska innanríkisráðuneytisins, í frönskum vefmiðlum né við leit á Google News þar sem auðvelt er að leita að slíkum fregnum enda afar fátítt að til hákarla sjáist við Miðjarðarhafsstrendur Frakklands.
Í þokkabót yrði það varla í verkahring franskra stjórnvalda að gefa út viðvörun um hugsanlegan hákarl við strendur landsins heldur öllu frekar frá strandvörðum eða bæjaryfirvöldum í viðkomandi bæjum.
Slík viðvörun var gefin út í ágúst í fyrra í nokkrum bæjum við Miðjarðarhafsströndina eins og Fararheill.is greindi þá frá. En fregn Pressunnar nú er algjörlega úr lausu lofti gripin og á sér engar stoðir í raunveruleikanum.






