Hversu indælt væri að dýfa táslum í heitan sand í Algarve um sama leyti og kaldir vindar blása á klakanum og það fyrir vasapeninga? Það er mætavel hægt með fyrirhyggju og skipulagningu.
Kannski er fulldjúpt í árina tekið að tala um klink en gegnum Bretland er hægt að komast til og dvelja á fjögurra stjörnu hóteli í Carvoeiro með morgunverði í fjórar nætur í október fyrir aðeins 28 þúsund krónur á mann. Það gerir litlar sjö þúsund krónur fyrir hvern dag.
Slíkt tilboð er nú í boði hjá bresku ferðaskrifstofunni Broadway Travel og er í boði nú í maí, júní og í október. Fyrstu tvo mánuðina frá Gatwick flugvelli og í október frá Stansted flugvelli.
Sem er einmitt ástæða þess að auðvelt er að mæla með slíku því reglulega bjóða Iceland Express, Wow Air og Icelandair góð sértilboð til þessara flugvalla. Líklegt má telja að það verði áfram og mun Fararheill greina frá þegar slíkt gerist.
Fáist þannig fargjald til London fyrir tólf til þrettán þúsund á mann er samt komist á portúgalska strönd í október fyrir um það bil 40 þúsund á mann og sama til baka.
Þyki fjórar nætur helst til lítið kostar ekki mikið meira að finna fleiri tilboð eins og þetta hér til Teletiye í Tyrklandi nú í júní frá Gatwick. Sjö nætur þar á fimm stjörnu hóteli með öllu inniföldu kostar aðeins 60 þúsund krónur á mann miðað við gengi dagsins.
Til samanburðar bjóða Heimsferðir tíu nátta ferðir til Bodrum í beinu flugi í júní og gistingu á fimm stjörnu hóteli með öllu á 222 þúsund krónur á mann. Verðmismunur er þannig 324 þúsund krónur fyrir utan kostnað við að koma sér til Bretlands. Það getur kostað töluvert með litlum fyrirvara en skjagar þó aldrei upp í ofangreindan verðmun.







