Tíðindi

Tilboð til Osló næstu tvo mánuði

  07/09/2011desember 5th, 2014No Comments

Ferðasalinn Iceland Express býður nú sértilboð til hinnar ágætu borgar Osló í Noregi næstu tvo mánuðina. Fæst nú flugfar þangað fyrir aðeins 12.900 krónur aðra leiðina.

Það er sparnaður milli sjö og tíu þúsund krónur frá reglulegu fargjaldi sem er jákvætt í meira lagi.

Illu heilli er Osló hins vegar töluvert dýr með tilliti til lágs gengis íslensku krónunnar og vart þangað farið nema ættingjar eða vinir skjóti skjólshúsi yfir ferðalangana.

Gildir tilboð IE aðeins um fargjöld í september og október.

Heimasíða Iceland Express hér.