Ekki væri amalegt að henda nærum í tösku og bruna sem leið liggur til Alicante á Spánarströnd nú þegar fyrsta haustlægðin kemur með sinn indæla kulda og leiðinlegheit. Ekki síst ef slík ferð fengist á verði sem ekki kostar margra mánaða sparnað.
Slík ferð er reyndar í boði en með öfugum formerkjum því ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýsir nú laus flugsæti FRÁ Alicante á 19.900 krónur sem telst vera með því ódýrara sem gerist.
Nær er því að henda föðurlandi í tösku séu menn staddir í Alicante og vilji heim en forfallasætin sem um ræðir eru í boði 9., 11. og 16. september.
Hefur ritstjórn Fararheill reyndar gagnrýnt ferðaskrifstofurnar íslensku fyrir að bjóða forfallasæti sín allt of seint til að það komi mörgum að notum.
Þannig er um þetta tilboð Heimsferða því jafnvel þó einhverri fjölskyldu hugnaðist að drífa sig fyrir fullt verð út og heim aftur á tilboðsverði er tíminn til þess of knappur.
Heimasíða Heimsferða hér.






