Þá er það opinbert. Kína hefur skotið Spáni afturfyrir sig og er nú þriðji vinsælasti áfangastaður ferðamanna í heiminum samkvæmt opinberum tölum frá síðasta ári. Frakkland er sem fyrr langvinsælast heimsóknar.
Hefur Ferðamálastofnun Sameinuðu þjóðanna birt staðfestar tölur yfir ferðamannafjölda á síðasta ári og vekur þar athygli að þrátt fyrir að leifar efnahagskreppu hafi árið 2010 leikir margar þjóðir illa eykst ferðamannafjöldi víðast hvar og það töluvert.
Þannig fellur Spánn, sem var þriðji vinsælasti áfangastaður ferðamanna í heiminum, niður í fjórða sætið en engu að síður heimsóttu fleiri Spán en gerðu árið 2009.
Er Kína hástökkvarinn milli ára en þar fjölgaði ferðafóki um tæplega fimm milljónir. Ekkert bendir til annars en það haldi áfram þó Kína hafi klárlega heillað fleiri en venjulega sökum Heimssýningarinnar í Shanghai á síðasta ári.
Hér að neðan má sjá þrjá vinsælustu áfangastaði ferðamanna í hverri heimsálfu fyrir sig árið 2010 samkvæmt tölum SÞ.
EVRÓPA (477 milljónir ferðamanna í heild)
- Frakkland 76,8 milljónir
- Spánn 52,6 milljónir
- Ítalía 43,6 milljónir
ASÍA (204 milljónir í heildina)
- Kína 55,6 milljónir
- Malasía 24,5 milljónir
- Hong Kong 20,0 milljónir
AMERÍKA (150 milljónir í heildina)
- Bandaríkin 59,7 milljónir
- Mexíkó 22,4 milljónir
- Kanada 16,1 milljón
MIÐ AUSTURLÖND (60 milljónir í heildina)
- Egyptaland 14,0 milljónir
- Sádí Arabía 10,8 milljónir
- Sýrland 8,5 milljónir
AFRÍKA (49 milljónir í heildina)
- Marokkó 9,2 milljónir
- Suður Afríka 8,0 milljónir
- Túnis 6,9 milljónir








