Þúsundir fyrsta flokks hótela í þúsundum borga, bæja og sveita um alla Evrópu bjóða aðgang að fyrsta flokks heilsulindum með öllu tilheyrandi. Nema hvað þú vilt vera 1001 prósent viss um að bjóða elskunni á það allra allra besta og vilt ekki taka neina einustu sjénsa.
Þá er ekki úr vegi að kíkja á lista yfir þau spahótel Evrópu sem fengu viðurkenningu og verðlaun á World Travel Awards nýlega fyrir einmitt að standa sig framúrskarandi vel. Ekki nóg með það heldur látum við fylgja með fimm bestu spahótelin að mati tímaritsins Forbes og þrjú bestu spahótelin að mati Spafinder.
PS: rétt er að hafa í huga að hækka heimildina á kreditkortinu duglega áður en dvalist er um tíma á þessum stöðum….. en þú átt það skilið 😉
Listi World Travel Awards:
- Cornelia Diamond Golf & Spa, Antalya, Tyrklandi
- Castel Monastero, Toskana, Ítalíu
- Fortina Spa Resort, Sliema, Möltu
- St.Davids Hotel & Spa, Cardiff, Wales
- Le Couvent des Minimes, Provence, Frakklandi
Listi Forbes:
- Capri Beauty Farm, Capri, Ítalíu
- Terme di Saturna, Saturnia, Ítalíu
- Cinq Mondes au Beau Rivage Palace, Lúsern, Sviss
- Spaciomm, Barcelona, Spáni
- Vigilius, Tíról, Ítalíu
Listi Spafinder:
- Hotel Adlon Kempinski, Berlín, Þýskalandi
- Mandarin Oriental, Prag, Tékklandi
- Brenner´s Park Hotel, Baaden-Baaden, Þýskalandi






