Ár eftir ár sama sagan til og frá Alicante á Spáni. Flugtímar þeirra tveggja flugfélaga sem bjóða flug til og frá þessum vinsæla áfangastað svo herfilegir að þeir gætu varla verið verri þó menn reyndu.

Alls enginn vilji til að bjóða Íslendingum flug til Alicante á eðlilegum tíma.

Lítið heyrist kvartað enda Íslendingar svo slæmu vanir um áraraðir að enginn kippir sér mikið upp við hörmulega flugtíma á einn allra vinsælasta sumaráfangastað landsmanna. Flugtíma sem eru svo slæmir að fyrsti dagur heimkomu er í raun ónýtur með öllu.

Hvað erum við að tala um? Wow Air og Primera Air bjóða okkur sem fyrr upp á beint flug til Alicante á Spáni í sumar. Alicante að sumarlagi er jafnan vinsælasti eða næstvinsælasti áfangastaður sólþyrstra Íslendinga og fjöldi fólks á þar íbúðir og villur í kring.

Þetta árið, 2017, eru hlutirnir jafn slæmir og áður. Brottfarir Primera Air frá Keflavík eru annars vegar kl. 17.10 og hins vegar kl. 18.10. Lending í Alicante rétt fyrir miðnætti eða rétt fyrir kl. 01.00 að nóttu. Flogið er heim kl. 00.45 eða 01.45 eftir atvikum og lent í Keflavík 03.30 eða 04.30.

Ekki batnar það sé litið til Wow Air. Brottfarar þeirra véla til Alicante þetta sumarið er 17.30 og lending kl. 00.30. Brottfarartímar hrein kjötkveðjuhátíð miðað við heimfarartíma. Haldið er frá Alicante kl. 01.10 og heim er komið klukkan 04.00 ef áætlun helst sem oft reynist ekki raunin hjá Wow Air.

Spennandi ekki satt? Hefur einhver tekið eftir að engar aðrar vélar en þær íslensku eru að fara í loftið um hánótt frá Alicante. Ekki einu sinni Ryanair dettur í hug að bjóða upp á slíkan heimfarartíma fyrir sína farþega og mega þeir þó éta að mestu leyti það sem úti frýs.

Aðalatriðið þó það að afar fáir sem lenda í Alicante um miðnætti eða síðar eru komnir á gististað fyrr en klukkustund eða tveimur síðar. Margir halda til Torrevieja og hinir til Benídorm eða Calpe. Til þessara staða er klukkustund plús í akstur frá flugvellinum og í þokkabót eru strætisvagnar og rútur sem alla jafna ferja fólk á milli hættir að ganga. Sem þýðir stóraukinn kostnað fyrir Íslendinga. Nægir þar að skoða tilboð Vita fyrir fjögurra manna fjölskyldu til Calpe og aftur á flugvöllinn í sumar. Prísinn á því skutli litlar 34 þúsund krónur meðan sama fjölskylda kæmist með áætlunarbíl sömu leið fyrir átta þúsund krónur.

Næstum verra er að koma heim í Keflavík um fjögurleytið að nóttu. Fólk komið til síns heima um sex-leytið og dagurinn framundan ónýtur með öllu fyrir þorra fólks.

Kannski er það barátta við vindmyllur að benda á þetta rugl og víst er að enginn annar en við hjá Fararheill kvartar yfir þessum flugtíma. Kannski finnst fólki þetta frábært?