Í sjálfu sér aðdáunarvert þegar fyrirtæki leita allra leiða til að bjóða viðskiptavinum sínum lægra verð á varningi eða þjónustu. En stundum fara hlutirnir út í öfgar.

Hvað er athugavert við þessa mynd? Skjáskot

Það er reyndin hjá ferðaskrifstofunni Vita sem þessi dægrin býður upp á all frumlega nýjung á minnst einum af gististöðum ferðaskrifstofunnar á Spáni.

Vita býður gistingu á Hipocampos íbúðahótelinu í Calpe þetta sumarið sem er nýuppgert og fær allsæmilega dóma hjá netverjum. Nýjung Vita felst í því að þrif eru ekki innifalin í pakkanum þetta sumarið.

Illu heilli stendur ekki stafur í viðbót á vef Vita um hvað þetta hefur í för með sér. Er ætlast til að gestir þrífi hátt og lágt við lok dvalar og skili öllu skínandi fallegu? Það væri þá feitur sölupunktur og væntanlega barist um herbergin hér. Hverjum finnst það ekki toppur á tilverunni að eyða fríinu í þrif fyrir aðra?

En bóki fólk á íbúðahótelinu sjálfu eru þrif innifalin???

Eða er verið að gefa í skyn að verð fyrir gistinguna sé hærra en auglýst er því ofan á komi þrifagjald síðar meir? Sé það raunin eru eðlilegir viðskiptahættir að tiltaka aukakostnað við þrifin og enn eðlilegra að bæta þeim kostnaði ofan á auglýst verð. Allt annað má eiginlega flokka sem blekkingar, ekki satt?

Kannski undarlegast af öllu þó sú staðreynd að sé þessu hóteli flett upp á hótelvef Fararheill hér að neðan kemur hvergi fram á neinum bókunarvef krafa um aukagjald vegna þrifa. Sé flett upp á heimasíðu hótelsins kemur kyrfilega fram að þrifið er fyrir komu og við brottför undir liðnum „included services.“

Hvað eru Vitaferðir að reyna? Getur verið að þetta sé aðeins mjög illa orðuð ábending um að enginn þrífi pleisið meðan á dvöl stendur? Þá er eins gott að dvelja ekki mjög lengi.