„Ég var búinn að steingleyma að ég hefði hana á mér,“ er algengasta afsökun þeirra þúsunda Bandaríkjamanna sem stöðvaðir eru ár hvert á leið um borð í flugvél með hlaðna byssu á sér eða í handfarangri.

Sífellt finnast fleiri vopn á farþegum á flugvöllum Bandaríkjanna. Skjáskot

Allt ósköp eðlilegt við að taka vopn með sér í flugvélar og ekki síður eðlilegt að „gleyma“ því að níðþungt skotvopn er í beltinu.

Þetta engu að síður staðreynd samkvæmt tölfræðiúttekt bandarísku samgöngustofnunarinnar, TSA, árið 2016. Aldrei áður hafa svo margir einstaklingar verið stöðvaðir með vopn af einhverju taginu á leið um borð á flugvöllum landsins og þar af tæplega 3.400 manns með hlaðnar byssur.

Einhver kynni að benda á að það sé nú lítill fjöldi miðað við þann milljónaskara af fólki sem notar bandaríska flugvelli og það rétt ályktað. En þá gleymist sú staðreynd að margt fer framhjá öryggisvörðum á flugvöllum eins og rannsóknir hafa leitt í ljós. Eða hversu lengi heldur fólk að lágt launað starfsfólk við töskuleit haldi athygli á skjám þar sem þúsund töskur renna í gegn á hálfri klukkustund?

Sennilega óhætt að skjóta á að að minnsta kosti jafnmargir komist um borð í farþegavélar með einhver vopn og þeir eru sem teknir eru í öryggisleitinni. Og aðeins þarf eina kúlu úr skammbyssu til að gera gat á flugvélaskrokk. Þá er fjandinn laus.