Tíðindi

Til Kína og heim aftur fyrir 60 þúsund

  09/02/2012desember 23rd, 2014No Comments

Ef það hljómar of gott til að vera satt þá er það of gott til að vera satt… nema stundum. Það á við um 56 þúsund króna fargjöld til Kína sem sannarlega eru raunveruleg en þá aðeins að fólk eigi danskar krónur í buddunni og tekið sé flugið frá Köben.

Danska netferðaskrifstofan Travelmarket heldur úti ansi fróðlegum vikulegum lista yfir verðlag á flugi og ferðum til og frá Kaupmannahöfn. Dansk flyprisindex heitir sá og sýnir á myndrænan hátt bestu verð til og frá Kaupmannahöfn á hverjum tíma fyrir sig.

Og met var sett í síðustu viku þegar Dönum buðust flugferðir til Kína og heim aftur á lægsta verði sem sést hefur á þeirri leið í landinu. Prísinn litlar 2.900 danskar krónur sem gerðu rúmlega 60 þúsund íslenskar krónur miðað við gengi dönsku krónunnar þá vikuna.

Er reyndar Finnair enn með tilboðsverð á þessari leið, 549 evrur til Beijing, á vef flugfélagsins en danska krónan stendur vitaskuld mun betur gagnvart evru en systir hennar á Íslandi og þurfa Íslendingar því að borga um 30 þúsund krónum meira fyrir sama tilboð eða 89 þúsund samkvæmt gengi 9. febrúar 2012. Það er auðvitað fyrir utan flugferð til og frá Helsinki.