Ferðalög til fjögurra borga heimsins eru nú á tilboðsverði hjá Icelandair sem kynnt hefur annað hraðtilboð sitt á skömmum tíma. Öll tilboðin í þetta skiptið ná til ferða fram í júní eða júlí.
Um er að ræða Billund í Danmörku, Ósló í Noregi, Hamborg í Þýskalandi og Toronto í Kanada.
Til Billund kostar ferðin út 14.900 krónur og heim aftur samtals 28.100 krónur næsta sólarhringinn. Ferðatíminn einskorðast við 2. júní til 9. júlí í sumar sem er fínn tími til að taka inn sól meðan smáfólkið dúllar sér í Lególandi.
Sama verð er á flugi til næstdýrustu borgar heims Ósló næsta sólarhringinn eða 14.900 aðra leiðina. Báðar leiðir saman kosta 28.300 krónur. Ferðatíminn aðeins víðari eða frá 8. apríl og fram til 17. júní. Á þeim tíma er hægt að ná í skottið á Norwegian Wood hátíðinni.
Sömuleiðist kemst fólk til Hamborgar fyrir 14.900 aðra leiðina sé keypt far næstu 24 stundirnar. Fyrir flug báðar leiðir þarf hins vegar að punga út 29.200 krónum. Þar er hins vegar hægt að dvelja frá 1. júní og fram til 13. júlí. Tónlistarhátíðin Nordstern fer fram á þeim tíma undir beru lofti.
Að síðustu er komist til einnar skemmtilegustu borgar Kanada, Toronto, á tilboðsverði. 27.900 krónur kostar önnur leiðin en vilji fólk heim aftur hækkar gjaldið í 58.600 krónur. Flug þarf að hefjast í apríl, maí eða júní og síðasta heimkoma þann 15. júní. Í maí er hægt að vitna meðal annarra Bryan Adams og Il Divo á sviði í borginni.
Heimasíða Icelandair hér.






