K aldur og votur nóvember er líklega einn leiðinlegasti mánuður ársins hér á klakanum. Nú hægt að stúta honum að hluta með flugi til Dúbæ (Dúbaí) á kostakjörum.

Eins og við fjöllum um hér er Dúbæ afskaplega yfirborðskennd borg og takmarkað hægt að sýsla hér annað en versla. Jafnvel verslun hér er ekki upp á fiska því hlutir hér eru mun dýrari en í nágrannalöndum.

Að því sögðu er hitastigið hér upp á tíu yfir vetrartímann í Evrópu og ekkert leiðinlegt að komast í þann hitann fyrir sléttar 70 þúsund krónur frá Fróni. Það er hægt þessi dægrin með því að tryggja sér flug til Helsinki með Finnair eða Icelandair og þaðan bóka flug með Turkish Airlines til Dúbæ gegnum Istanbúl.

Túrinn til Helsinki og heim kostar 28 þúsund krónur en frá Helsinki til Dúbæ og sömu leið til baka greiðir einstaklingur aðeins 43 þúsund krónur. Tæknilega er hægt að stoppa stundarkorn í Istanbúl á leiðinni ef fólk svo kýs.

Fjandi vel boðið alla þessa leiðina ef þú spyrð okkur 😉