Ferðaskrifstofan Vita, dótturfyrirtæki Icelandair, virðist hafa náð feykigóðum díl við eigið móðurfyrirtæki ef marka má tilboð ferðaskrifstofunnar á flugi til og frá Alicante í apríl. Tilboð sem toppar það sem Wow Air býður á sama tíma.

Skondið að ímynda sér hvernig þessi kaupin á eyrinni gætu hafa átt sér stað:

Vita: „Sæl. Vita hér. Heyrðu, við erum ekki að selja neitt svaka af ferðum til Alicante í apríl. Er ekki hægt að gera eitthvað til að bæta úr því?“

Icelandair: „Er þetta Valgeir? Sæll vinur. Búinn að ná þér eftir árshátíðina? Heyrðu leyfðu mér að tékka á sjéffanum. Hinkraðu á meðan.“

Vita: „Já, geri það. Sendu kveðju á gamla.“

Þrjár mínútur líða.

Icelandair: Valli. Sjéffinn gaf grænt ljós. Hentu nokkrum ferðum í afsláttarkörfuna. Karlinn er sjálfur á leið í golf á þessar slóðir með forstjóra Toyota. Kannski óvitlaust að bjóða golfsettið frítt með í tilteknum ferðum. Golfarar eru sökkerar fyrir svoleis.“

Vita: „Þvílík hugmynd! Karlinn er ekki sjéffinn fyrir ekki neitt. Græjum þetta og takk fyrir.“

Viti menn! Tiltekin fargjöld Vita til Alicante og heim aftur með farangur plús golftösku að auki kosta það sama og fargjöld Wow Air á þessum tíma að frátöldum golfpoka meðferðis.

Með öðrum orðum; flugfargjöld Vita eru hagstæðari til Alicante í apríl en hjá lággjaldaflugfélaginu Wow Air. Vita er að bjóða fram og aftur með tösku og golfsetti á 39.900 á völdum dagsetningum. Wow Air býður lægst fram og aftur með tösku á 38.441 krónu en þar vantar golfpokann sem bætir tíu þúsund krónum ofan á verðið báðar leiðir. Þú sparar því tæplega níu þúsund kall á að versla við Vita ef þú vilt til Alicante í apríl og spila golf í leiðinni.

Meira hér.