Flugferðir geta verið bæði þægilegar og skemmtilegar. Kynntu þér þjónustu WOW air um borð og njóttu þess að vera gestur hjá okkur. Við hlökkum til að stjana við þig!
Það var og. Svo hljómar fyrsta setningin á vef Wow Air um þjónustustigið um borð í vélum flugfélagsins. Ekki amalegt. Staffið beinlínis bíður eftir að stjana við fólkið.
Þó ekki farþega Wow Air sem eru þessa stundina fastir í vélinni á flugvellinum í Belfast en þangað var flogið eftir að veðurofsi kom í veg fyrir lendingu í Dublin á Írlandi fyrr í dag.
Samkvæmt tístfregnum kom ekki einu sinni til greina af hálfu starfsfólks Wow Air í vélinni að gefa farþegum sínum vatn að drekka þrátt fyrir margra klukkustunda töf og langa bið í vélinni. Neibbs. Einu gildir hvað gengur á þá skal lýðurinn borga allt fullu verði. Nákvæmlega 350 kall fyrir skitinn hálfan lítra af vatni.
Merkilegt ekki satt, hvað ríkasta fólkið er oft nískara en andskotinn. Þetta jaðrar við að vera hrein og bein mannvonska.







