Ef frá er talinn um það bil helmingur Bandaríkjamanna þá gerir vitiborið fólk sér grein fyrir að mengun af ýmsu tagi er hægt og bítandi að tortíma öllu lífi á jörð. Það gerist fyrr eða síðar en þar sem við eigum börn, barnabörn og barnabarnabörn er aðeins skemmtilegra að hafa það síðar ef hægt er.

Fargjöld SAS eru dýrari en annarra heilt yfir en vélar þeirra menga mun minna á móti.

Fargjöld SAS eru dýrari en annarra heilt yfir en vélar þeirra menga mun minna á móti.

Í stóru myndinni er engin ósköp sem hver og einn einstaklingur getur gert til að seinka dómsdegi. Það verða pólitíkusar í ríkjum heims að koma sér saman um og miðað við gjörðir þeirra gegnum tíðina eru líkurnar engar.

En við getum sannarlega reynt okkar besta. Einn örlítill angi af því er að beina viðskiptum til þeirra fyrirtækja sem sýna lit í þessum efnum.

Þrjú slík fyrirtæki eru flugfélögin KLM, SAS og Lufthansa sem enn sem komið er eru einu flugfélögin sem hafa skráð sig í nýstárlegt eldsneytisprógramm á Gardamoen flugvelli í Osló í Noregi. Sá flugvöllur selur nú flugvélaeldsneyti sem framleitt er úr akurdoðrum, camelina. Olía unnin úr þeim plöntum þykir frábær sem þotueldsneyti eftir margra ára prófanir. Best af öllu sú staðreynd að slíkt eldsneyti minnkar mengandi útblástur vélanna um allt að 80%.

Það er ekki lítill munur í heimi þar sem flugvélar eru taldar ábyrgar fyrir allt að fimm prósent þeirra mengandi efna sem út í andrúmsloftið berast.

SAS er eina þessara flugfélaga sem flýgur milli Osló og Keflavíkur og því ráð fyrir þau okkar sem vilja leggja sitt á vogarskálar að planta rassi í þeirra sæti í stað annarra sem þá leiðina fljúga. Það auðvitað fleiri aðilar en Vinstri grænir.

Fararheill forvitnaðist um hvers vegna Icelandair, sem einnig flýgur til og frá Osló, er ekki þátttakandi en vélar flugfélagsins menga vel umfram flesta aðra sökum þess hve flugvélar þeirra eru gamlar. Í svari þeirra kemur fram að verið sé að fylgjast með umræddu verkefni en ákvarðanir hafi ekki verið teknar að svo stöddu.

„Icelandair hefur undanfarin tæp tvö ár verið aðili að stóru norrænu samstarfsverkefni, NISA, Nordic Initiative for Sustainable Aviation, sem vinnur að þróun endurnýjanlegra orkugjafa fyrir flugfélög og fleiri umhverfisverkefnum. Við fylgjumst náið með því hvernig verkefnið, sem þú nefnir, gengur og þátttaka Icelandair í því er til skoðunar þó ákvarðanir hafi ekki verið teknar.“

Með öðrum orðum: það er ekkert að gerast hjá Icelandair varðandi að takmarka mengun. Við bara þátttakendur í einhverjum grúppum sem rabba fram og aftur um ekki neitt eins og Sigmundur Davíð á Alþingi.