Dabbadona!!! Sextíu og þrír dagar undir funheitri Kanarísólinni á „ævintýralegum“ kostakjörum með Úrval Útsýn. Aðeins 114.544 krónur á kjaft. Hallelújah!

Stökktu í sól með litlum fyrirvara segir ÚÚ. En á tilboðssíðunni má finna sólarferðir allt næsta sumarið. Ekki alveg lítill fyrirvari kannski. Skjáskot

Alltaf dálítið skemmtilegt að vippa sér yfir á „tilboðsvef“ ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn. Þar eiga að finnast kostakjör á pakkaferðum með litlum fyrirvara.

Og jú, víst finnst þar ferð í sólina eftir sex daga þegar þetta er skrifað en restin af „tilboðsferðunum-með-litlum-fyrirvara“ eiga við næstu mánuðina og allt fram í ágúst. Kannski er Vigdís Hauks farin að starfa hjá ÚÚ sem skýrir um leið hvers vegna fyrirvari þykir stuttur í sólarferð í júní, júlí og ágúst.

En aftur að megatilboðinu sem við minntumst á í fyrirsögninni. 114.544 krónur á haus fyrir tveggja mánaða dvöl á Ensku ströndinni. Út 3. apríl og ekki heim aftur fyrr en 5. júní. Brilljant verð á ferð jafnvel þó dvölin sé á minna en yndislegu tveggja stjörnu hóteli.

Hvers konar fólk rífur krakkana úr skóla í tvo mánuði til að dúllast á Kanarí? Skjáskot

Nema, eins og alltaf er raunin hjá Úrval Útsýn, þá er hængur á. Þú þarft að taka tvö börn undir ellefu ára aldri með í förina.

Það skemmir dálítið stemmarann jafnvel þó blessuð börnin séu yfirleitt yndislegri en þeir fullorðnu. Hætt við að „afslöppunin“ verði engin frá apríl og fram í júní ef hafa þarf stanslaust auga með krökkunum öllum stundum. Fólk kemst ekki einu sinni á Íslendingabarinn á kvöldin því engin er barnapían…

Ók, við skulum hætta kaldhæðninni.

Það er enginn heilvita maður eða foreldrar að rífa börn úr skóla í tvo mánuði til að dúlla sér á kostakjörum með margarítur við hönd á sundlaugarbakka á Kanarí. Nema það sé venjan hjá Pálma Haraldssyni, eiganda Úrval Útsýn, og kæmi ekki á óvart. Karlinn gengur varla óáreittur um íslenskar götur eftir rammflekkaðan feril og þarf því til Kanarí þar sem enginn kannast við kauða.

En auðvitað býst Úrval Útsýn ekki við miklum viðskiptum barnafólks við þessu tilboði sínu. Hér aðeins verið að kasta ryki í augu til að blekkja og auglýsa túr á miklu lægra verði en raunin er. Því hvaða fólk annað en eldri hjón, eldra par eða fólk sem ekki vinnur lengur hangir hálfnakið á Kanarí mánuðum saman? Hvaða vinnandi fólk fær tveggja mánaða frí sísona?

Raunin er hins vegar að túrinn atarna ef aðeins tveir fullorðnir grípa gæsina kostar manninn 209.288 krónur. Samtals 418.576 krónur á parið. Sem sagt 83 prósent dýrara per haus en Úrval Útsýn vill vera láta.

Það merkilega er að raunverðið fyrir tvo saman er ekki neitt fáránlega hátt fyrir rúma tvo mánuði á Ensku ströndinni. Víst er hótelið ekkert merkilegt en samt sem áður hefði Úrval Útsýn sannarlega getað auglýst ferðina fyrir aðeins tvo saman og samt fengið plús í kladda hjá mörgum þarna úti. Umrædd ferð kostar manninn rúmlega 3.300 krónur per dag. Það er fantagott á þessum vinsæla stað á Kanarí. Engin þörf á ryki og blekkingum þegar þú ert með sæmilega vöru á góðu verði…