Það kemur auðvitað ekki til greina að setja á komu- eða brottfarargjöld á ferðafólk nema eiga samráð og samtal við ferðaþjónustuaðila. Svo segir ferðamálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Einn galli við það: hún er gift Mogensen.

Ein vonarstjarna Sjálfstæðisflokksins er Þórdís Kolbrún nokkur gift Mogensen. Skjáskot
Sjálfstæðismenn vilja helst ekki setja plástur á skeinu og hvað þá auka álögur á einu né neinu í þessu landi. Þvert á móti er lækkun gjalda og skatta aðalatriðið hvað sem tautar og raular.
Sem sennilega væri gott og blessað (því öll viljum við meira í launaumslagið) ef vegir landsins væru ekki handónýtir, ef við þyrftum ekki að ná okkur eftir skurðaðgerðir í bílskúr Landspítalans, ef aldraðir ættu áhyggjulaust ævikvöld, öryrkjar hefðu efni á heitri máltíð einu sinni á dag og sífellt fleiri heimilislausir ættu tryggt þak yfir höfuð þegar Kári bítur sem fastast.
Ein meginstjarna flokksins, nýkjörinn varaformaður Þórdís Kolbrún, var í viðtali í útvarpsþættinum Harmageddon fyrr í vikunni. Þar var meðal annars rætt um komu- eða brottfarargjöld á þær milljónir ferðalanga sem staldra nú við á klakanum. Rúmlega tvær milljónir þeirra nánar tiltekið.
Enginn þeirra greiðir sent til ríkisins fyrir að aka um ónýta vegi landsins. Enginn þeirra greiðir pund til ríkisins fyrir aðgang að Gullfossi eða Geysi. Enginn þeirra fær ríkissekt fyrir að kúka og pissa við Skógarfoss eða leika sér á ísjökum í Jökulsárlóni og svo framvegis og svo framvegis.
Neibb, þetta er heilagt lið og má gera það sem það vill. Ekki leiðinlegt heldur að fjöldi lággjaldaflugfélaga flýgur til landsins svo það kostar skid og ingenting að skaufast á íslenskri náttúru. Enginn stjórnmálamaður hefur heldur, okkur vitandi, sett út á þá staðreynd að laun í „ferðaþjónustunni“ eru svo lág að enginn fæst til starfa nema erlent vinnuafl. Á sama tíma skila öll ferðaþjónustufyrirtæki feitari arði en sjávarútvegsfyrirtæki.
Allt nokkuð eðlilegt eða ekki. Líka sú staðreynd að háttvirtur ferðamálaráðherra er gift Hjalta Sigvaldason Mogensen. Ekkert að því. Hjalti ábyggilega stöndugur og heiðarlegur lögmaður eins og þeir eru allir. Nema ef vera skyldi að hann er náskyldur milljarðamæringnum sem á og rekur stærsta flugfélag landsins: Skúla Mogensen, eiganda Wow Air.
Alveg kristaltært auðvitað að Skúli Mogensen er lítt hrifinn af auknum sköttum á flug sitt. Þá gæti kappinn misst bissness. En auðvitað er Kolbrún Reykfjörð ekkert að taka málstað Mogensen neitt sérstaklega….
…ekki frekar en málstað síns eigin formanns í flokknum, Bjarna Benediktssonar, hvers fjölskylda á og rekur stærsta rútufyrirtæki landsins. Það fólk vill auðvitað engin aukagjöld á túristann því við það gæti þeim fækkað og það kemur niður á Kynnisferðum. Það var jú bara tveggja milljarða króna arður af því fyrirtæki 2015/2016. Það allt of lítið fyrir litla fjölskyldu og alveg fráleitt að ætla að skattleggja túristann frekar.
Við hjá Fararheill teljum hafið yfir allan vafa að Þórdís Kolbrún sé alls óhæf til að ákvarða nokkurn skapaðan hlut um ferðaþjónustuna í landinu. Til þess er hún of tengd fjölda fólks sem græðir fúlgur fjár á ferðamennsku.
En svona er Ísland í dag. Allir sáttir bara…







