Við hér engir aðdáendur Primera Air en það skal ekki af þeim tekið að flugfélagið býður nokkra áfangastaði sem engir aðrir bjóða í beinu flugi héðan. Trieste á Ítalíu einn þeirra og það kjörstaður fyrir fólk sem vill sól og sælu í sumar en ekki á sömu gömlu spænsku ströndunum.

Borgin Trieste kannski ekki heimsfræg en hér fallegt og stutt til ýmissa merkisstaða.

Þegar þetta er skrifað má enn bóka flug fram og aftur í júnímánuði með Primera Air kringum 40 þúsund krónur með tösku meðferðis þó reyndar það hoppi yfir 50 þúsund og jafnvel hærra en það þegar líður á sumarið.

Alls ekki hræðilegt verð. Við mörg orðin svo vön því núna að komast hingað og þangað fyrir 20 til 30 þúsund, að allt fyrir ofan það kann að virðast dýrt. En 40 kallinn og jafnvel 50 kall til Ítalíu er ekki okur á neinn mælikvarða með tösku meðferðis.

Trieste sjálf er vel heimsóknar virði en aðalatriðið hér er þó hversu stutt er í súperstaði. Tvær klukkustundir til hinna ógleymanlegu Feneyja. Litlu lengra til afar fallegra borga á borð við Padua og Vicenza. Svo ekki sé talað um borgina Udine til norðurs en þangað tekur röskan hálftíma að keyra. Gróflega 50 mínútur á príma ítalska strönd við Lignano eða Bibione og reyndar þarf ekkert að fara neitt frá Trieste to að finna baðströnd á heimsmælikvarða. Þær hér líka.

Fyrir þá ævintýragjarnari er þjóðráð að skottast til norðausturs í rúma klukkustund og lenda þá í Ljublana, höfuðborg Slóveníu. Nú, eða taka strikið beint suður og finna nokkra af fallegustu bæjum og ströndum Króatíu aðeins í hálftíma fjarlægð.

Ýmislegt vitlausara en negla flug með Primera Air á þessar slóðir. Ekkert liggur heldur á. Um 70 prósent sæta um borð í fyrstu ferðirnar enn lausar samkvæmt skoðun okkar.