Tíðindi

Þrjú Wow tilboð til miðnættis

  04/02/2013febrúar 4th, 2014No Comments

Wow Air býður til miðnættis í kvöld sértilboð á völdum ferðum til London, Parísar og Lyon. Prísinn góður eða 15.800 krónur aðra leið til allra þiggja borga en langbest er að ferðatíminn til frönsku borganna nær yfir júní og vel fram í júlí.

Það er kjörinn tími til að dúllast í Frakklandi fyrir fölskinna frá Fróni. Hitastigið oftast afar þægilegt og léttur klæðnaður dugar daga og nætur. Sem aftur minnkar þörfina að pakka miklu í töskur sem greiða þarf aukalega fyrir í ferðum Wow Air.

Fararheill hefur áður fjallað um plúsinn við að hafa Lyon í beinu flugi. Borgin sjálf kemur á óvart, héruð í kring kjaftfull af skemmtilegheitum og frá Lyon er hreint ekkert langt á ágætar strendur sem verða pakkaðar af fólki þegar líða fer á sumarið. Þá þarf ekki að fara mörgum orðum um vín héraðsins.

Heimasíða Wow hér.