Ritstjórn Fararheill bíður spennt eftir að forsvarsmenn Wow Air kynni rækilega á vef sínum stundvísi félagsins seinni hluta janúarmánaðar eins og lofað hefur verið. Stundvísin enda sallafín eða 90 prósent allra ferða á tíma. Gallinn bara sá að Icelandair stendur sig enn betur.

Farþegar með Icelandair seinni hluta janúar biðu skemur en farþegar Wow Air samkvæmt stundvísitölum.
Það er orðin regla frekar en undantekning að forsvarsmenn Wow Air lofi einu og geri annað eins og Fararheill.is hefur ítrekað bent á að undanförnu.
Nýlega kom félagið vel út í stundvísikönnunum Túrista og var lofað á vef félagsins að eftirleiðis skyldi félagið birta stundvísitölurnar við hvert tækifæri.
Stóra spurningin er því hvort Wow státar sig af stundvísi seinni hluta janúarmánaðar með tilliti til að Icelandair stendur sig töluvert betur. Heilli mínútu betur ef út í það er farið.
Eins og Fararheill hefur bent á, en ekki einn einasti fjölmiðill hefur séð ástæðu til að fjalla um, þá eru prósentutölur um stundvísi flugfélaganna íslensku afar misvísandi og reyndar hreint villandi. Prósentulega stóð Wow Air sig betur en Icelandair fyrri hluta janúarmánaðar en meðalseinkun beggja þó hin sama þar sem Icelandair flýgur mun oftar en samkeppnisaðilinn.
Sama er uppi á teningnum seinni hluta sama mánaðar. Wow Air mælist með 90 prósent stundvísi frá 16. til 31. janúar en Icelandair einungis 86 prósent.
Hvað þýðir það á mannamáli?
Jú, farþegar Icelandair biðu að meðaltali í fjórar mínútur aukalega þennan tíma en farþegar Wow Air einar fimm mínútur….
Því miður fyrir Icelandair og Wow Air hafa báðir aðilar þegar lagt blessun sína yfir þessa villandi tölfræði með auglýsingum með vísun í þessar sömu prósentur og gefa því gagnrýnum miðlum á borð við Fararheill afskaplega gott skotfæri á sig um leið. Mætti kannski senda markaðsmenn þessara fyrirtækja á námskeiðið: Kapp er best með forsjá 101!
Vefur túrista hér.






