Teljandi á fingrum einhents manns eru þeir vefir íslenskir sem tileinkaðir eru ferðalögum Íslendinga og geta flokkast sem raunverulegar upplýsingaveitur.
Einn vefur sérstaklega er þó skoðunar virði fyrir alla þá sem hyggjast heimsækja Ítalíu. Það er Rómarvefurinn svokallaði þar sem finna má gríðarlegt magn upplýsinga um Róm og nágrenni auk sögu og staðreynda úr ítalskri sögu og lífi.
Svo góður er sá að ritstjórn Fararheill sem telur sig færa í flestan sjó hugsar sig þrisvar um áður en við örkum fram á sjónarsviðið með upplýsingar um hina heillandi Róm.
Ritstjórn Fararheill.is veit um fjölda Íslendinga sem notið hafa góðs af Rómarvefnum á ferðum sínum á Ítalíu og öllum góðum hlutum skal maður deila.
Á vef þeirra má meðal annars finna grein um tíu hluti sem vert er að gera í Róm utan þess hefðbundna og þar tala sérfræðingar um borgina.
- Sitja að kvöldlagi undir hitalampa með eitthvað gott í glasi á kaffihúsi á torginu framan við upplýst algyðishofið Panþeon: það er draumi líkast.
- Að renna í einn vænan baccalá saltfisksbita á Dar filettaro a Santa Barbara rétt við Flórutorg, Campo de’ Fiori; Largo dei Librari, 88. Opið á kvöldin, lokað sunnudaga.
- Blanda geði við Trasteveringa og nærsveitunga á Bar San Callisto sem er afskaplega ódýr og afslappaður bar á samnefndu smátorgi rétt við Piazza Santa Maria in Trastevere.
- Rölta um gömlu Róm seint um kvöld, t.d. Campo de’ Fiori og Gyðingahverfið; enginn á ferli nema þú í þessari öldnu borg og engar áhyggjur af rómverskum ribböldum; þeir eru sofnaðir.
- Strolla um í rólegheitum, stoppa, skoða, horfa upp, horfa niður, kíkja inn í húsagarða, taka eftir skjöldum og öðrum merkingum páfa liðinna alda á húshornum og öllu hinu sem gerir Róm að einstakri borg.
- Líta við í sem flestum kirkjum – tekur engan tíma að skreppa inn og út og svo eru þær svalar og fínar. Kirkjur Rómar teljast margar til helstu listasafna borgarinnar; þ.e. verkin sem þau geyma eða byggingin sjálf og oft hvort tveggja.
- Smakka mikið af bitapízzum, bara litla smásneið í einu og alltaf eitthvað nýtt. Gera það sama með ísinn; oft, en bara eina-tvær kúlur í senn. Á bitapizzeríunum er hægt að fá supplì sem er venjulega dulítill mozzarelluostbiti pakkaður inn með hrísgrjónum í tómatsósu, velt upp úr raspi og að lokum djúpsteikt; algjört hnossgæti.
- Engilsborg, Castel Sant’ Angelo, er vel þess virði að heimsækja, þó ekki væri nema fyrir kalda birru í góðu veðri uppi á svölunum með frábært útsýnið yfir Tíber og miðbæinn.
- Ganga svolítið út fyrir bæinn, ef tími gefst til, t.d. um hinn forna Appíuveg og endilega að nesta í paðreimi Maxentíusar frá 4. öld. Það gerir alveg Rómarferðina.
- Ganga upp á Janikúlumhæð, eða taka leigara þangað, og njóta frábærs útsýnis yfir borgina. Fá sér síðan göngutúr niður hæðina niður í Trastevere og koma jafnvel við í San Pietro in Montorio og skoða Tempietto arkitektsins Bramante frá árinu 1502.








