Sérstaklega safaríkt tilboð er nú að finna hjá bresku netferðaskrifstofunni Internet Traveller sem þessa stundina býður tólf nátta þriggja staða ferðir til Tælands í maí og júní.
Dvalið er í lúxus á eynni Phuket, höfuðborgin Bangkok skoðuð í krók og kima og nokkrum tíma eytt í hinni fallegu og sérstöku Chiang Mai. Enginn nema Jóakim Aðalönd líklegur til að kvarta undan verðinu; 252 þúsund krónur á mann frá Bretlandi.
Séu í boði tilboðsverð héðan til Bretlands eins og raunin er núna er komist þangað á undir 20 þúsund krónum eða 40 báðar leiðir. Jafnvel sá viðbótarkostnaður breytir því ekki að nógur safi er enn í Tælandsferðinni sem þá kostar innan við 300 þúsund krónur á mann. Engar sambærilegar ferðir hafa mikið verið í boði héðan frá Íslandi en ritstjórn Fararheill rekur ekki minni til að neinar skipulagðar ferðir þangað hafi fengist undir 500 þúsund krónum á mann.
Tilboðið gildir í valdar ferðir í maí og júní sem fyrr segir og eins og verðið sé nú ekki nógu gott þá bætir ferðaskrifstofan um betur og hendir í kaupbæti tveimur skoðunarferðum á fílsbaki meðan dvalist er í Chiang Mai. Þá er ennfremur ódýrt að auka lúxusinn í Phuket án þess að setja það á tólf mánaða raðgreiðslusamning.
Ferðaskrifstofan sem um ræðir hefur tvívegis hlotið verðlaun í Bretlandi fyrir góða þjónustu og hefur öll tilskilin leyfi og tryggingar sem ferðaskrifstofum ber að hafa.
Tilboðið hér.






