Skrambinn hvað aflýsingar eru orðnar algengar hjá Icelandair. Það nánast orðið vikulegt fyrirbæri. Ein slík þennan daginn og sem fyrr hvergi upplýsingar að finna um ástæðurnar.

Aflýsing upp úr þurru hjá Icelandair og engar upplýsingar að fá. Skjáskot

Eins og sjá má hér til hliðar hefur flugi Icelandair til Boston verið aflýst. Engar frekari upplýsingar að finna á vef Keflavíkurflugvallar né staf um málið á heimasíðu Icelandair.

Aflýsing vegna veðurs útilokað þó ekki sé nema að vélar flugfélagsins til New York og Seattle á svipuðum tíma eru báðar á áætlun.

Þetta lyktar því sterklega af vélarbilun eða einhverju slíku og sé svo eiga allir farþegar vélarinnar inni 73 þúsund krónur í bætur samkvæmt Evrópureglum.

Aflýsingar alltaf leiðinlegar en sýnu skárra að fá góðar bætur fyrir en ekki.

Þær verður þó að sækja bréfleiðis, annaðhvort beint til Icelandair ellegar gegnum Samgöngustofu.