
Algjörlega magnað flugtilboð til Cancún í Mexíkó frá Bretlandi í boði þessa stundina. Skjáskot
Hér er fantatilboð á borð við þau sem við sjáum aldrei nokkurn tímann í boði hjá íslenskum flugfélögum eða ferðaskrifstofum. Flug fram og aftur til Cancún í Mexíkó fyrir heilar 33 þúsund krónur á mann!!!
Það er ekkert lítið frábært verð á rúmlega tuttugu klukkustunda flugi. Gjöf fremur en gjald ef þú spyrð okkur.
Það er enn hægt að negla þetta tilboð og fleiri til á svipuðum slóðum en tvennt hangir þó á spýtu. Annars vegar þarftu að bæta ofan á þetta flugi til og frá Gatwick í London og hins vegar er fyrirvarinn skammur. Þú þarft að ferðast í þessum mánuði.
Sáraeinfalt og ódýrt að skottast til Gatwick og heim. Flug fram og aftur í þessum mánuði finnst allt niður í fimmtán þúsund báðar leiðir. Sem merkir að heildarverð per íslenskan haus er gróflega 50 þúsund kall eða svo.
Verra að margir komast ekki viku, tvær eða þrjár frá um miðjan maí fyrirvaralítið. Þeir sem það geta og hrífast af litlum Mexíkönum með som, som breró 🙂 ættu að drífa sig á heimasíðu bresku ferðaskrifstofunnar TUI og bóka í grænum hvelli. Svona tilboð bjóðast ekki oft enda „eðlilegt“ verð á flugi til og frá Cancún fyrir Breta nær því að vera 60 til 80 þúsund krónur eða svo.







