Tíðindi

Tap á tap ofan hjá Icelandair

  14/08/2009maí 11th, 2014No Comments

Stjórnendum flugfélagsins Icelandair virðist alls varnað að skila hagnaði fyrir hönd eigenda sinna sem nú eru að mestu íslenskir skattgreiðendur. Samkvæmt hálfs árs yfirliti félagsins nam tap þess fyrstu sex mánuði ársins fimm milljörðum króna.

Einhverjum þætti það eðlilegt hjá slíku félagi að sýna tap á slíku umbyltingarári sem 2009 hefur verið hingað til enda flugfélög víða um heim í vandræðum. Hins vegar var tap Icelandair á þessum tíma fyrir ári, fyrir bankahrun og efnahagslægð í heiminum, 1.3 milljarður króna. Árið þar áður varð einnig tap á rekstrinum.