Tíðindi

Að reykja eða ekki að reykja

  14/08/2009maí 11th, 2014No Comments

Eitthvað virðast andstæðingar reykinga vera að gefa eftir og það á allra ólíklegasta stað. Í Bandaríkjunum.

Samkvæmt síðustu vefkönnun ferðavefsins Tripadvisor sem tæplega 4 þúsund manns tóku þátt í kemur í ljós að 81% þeirra vilja ekki banna reykingar við sundlaugar hótela og gististaða.

Skýtur þetta óneitanlega nokkuð skökku við enda fáir jafn oftstækisfullir gagnvart reykingum en Bandaríkjamenn en könnunin er fullkomlega marktæk og geta má þess að þáttakan er sömu stærðar og viðamestu kannanir Capacent Gallup hér á landi.

Bann við reykingum er víða og víðar í Bandaríkjunum en annars staðar í veröldinni en svo virðist sem menn setji mörkin við sundlaugar undir beru lofti. Þarf því ekki að hoppa í skýlunni út fyrir hótelsvæðið til að bræla eina sígarettu eða vindil sé mið tekið af vilja þátttakenda.