Þrátt fyrir allt sem undan er á gengið meðal íslensku þjóðarinnar og dvínandi traust gagnvart öllum helstu fyrirtækjum telja forsvarsmenn Heimsferða sig eiga eitthvað enn inni. Allavega auglýsa þeir nú í annað skipti á rúmri viku „einstakt“ forfallatilboð til Bodrum í Tyrkalandi.
Tilboðið nú, 13. ágúst, er nákvæmlega hið sama og sams konar tilboð sem auglýst var þann 5. ágúst. 129.900 krónur fyrir tveggja vikna ferð til Bodrum með öllu inniföldu. Afar einkennileg tilviljun er að í báðar ferðirnar losnuðu sex sæti vegna forfalla og því um einstakt tækifæri að ræða.
Er dapurt að sjá hversu litla virðingu Heimsferðir bera fyrir hugsanlegum viðskiptavinum sínum og ekki síst þegar haft er í huga að „forfallatilboðið“ er nákvæmlega jafn dýrt og hefðbundin sams konar ferð hefur verið á í sumar hjá ferðaskrifstofunni.
Tilboðið er svohljóðandi:
Forfallatilboð til Bodrum
14. ágúst – 2 vikur með „öllu inniföldu“
Smelltu hér ef þú átt í erfiðleikum með að lesa fréttabréfið!
- Hotel Blue Bay * * *
- Aðeins 6 sæti – vegna forfalla
- Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Heimsferðir bjóða einstakt sértilboð vegna forfalla 14. ágúst til sumarleyfisperlunnar Bodrum í Tyrklandi í 2 vikur. Í boði er gisting með „öllu inniföldu“ á Hotel Blue Bay ***, notalegu og vel staðsettu hóteli í hinum líflega bæ Gumbet. Hótelið er fjölskyldurekið og hefur nýlega verið endurnýjað. Hér er „allt innifalið“ sem felur m.a. í sér morgun-, hádegis- og kvöldverð auk innlendra óáfengra og áfengra drykkja (til kl. 23). Fyrir ýmsa aðra þjónustu á hótelinu getur þurft að greiða sérstaklega.
Bodrum bíður þín með einstakan menningararf, stórbrotna náttúrufegurð, töfra Eyjahafsins, frábæran mat og ótrúlega hagstætt verðlag! Sumarleyfisstaðurinn Bodrum í Tyrklandi er einn eftirsóttasta áfangastaður Tyrklands.
Ath. aðeins 6 sæti!
Frá kr. 129.900 – með „allt innifalið“ í 14 nætur
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með „allt innifalið“ í 14 nætur á Hotel Blue Bay ***. Sértilboð vegna forfalla 14. ágúst.
Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001Með fyrirvara um prentvillur






