Einhverjum ferðamanninum sem valsar um bakka Signu í París þessi dægrin gæti brugðið nokkuð í brún því á götum frönsku höfuðborgarinnar má nú sjá bifreiðar sem alla jafna sjást aðeins á götum breskra borga. Hinir sérstöku svörtu bresku leigubílar eru í útrás.

Heimurinn smækkar

Heimurinn smækkar

Allir kannast við þá af eigin raun ellegar gegnum sjónvarpsþætti eða kvikmyndir enda hvergi annars staðar að finna slíka leigubíla. Margir þeirra komnir vel til ára sinna og nokkuð lausir við mikil þægindi en líkt og tveggja hæða strætisvagninn vilja Bretar ekki sjá neitt annað.

Eigendur London Taxi Company veðja nú á að Frakkar taki sama ástfóstri við óhefðbunda leigubílana og aðrir og verða 30 slíkir á ferð í París næstu misserin og jafnvel lengur ef vel gengur.