Ok! Við könnumst velflest við þetta. Hótelherbergið okkar angar af skólpi, sturtubotninn fullur af hárum, mygla á veggjum og heyra má eitthvað loðið skjótast um herbergið eftir að ljósin eru slökkt.
Viðbjóðsleg hótel eru víða í heiminum og sum hver eru hreint ekkert ódýrari en önnur. En sökum þess að nú geta ferðalangar gefið einkunn og álit á fjölmörgum ferðavefum á netinu er nú auðveldara en áður að komast hjá því að panta hjá hótelum þar sem starfsfólk er ekki alveg með á hreinu hvað þrifnaður og þjónusta þýðir.
Þetta er tíu verstu hótel Evrópu samkvæmt álitsgjöfum á Tripadvisor og kannski kemur á óvart að þau eru aðeins í þremur löndum; Englandi, Hollandi og Tyrklandi:
- Club Aqua, Gumbet, Tyrklandi – Versta hótel Evrópu er eins og að stíga aftur í steinöld og líklegt að klósett og sturtur hafi verið þrifin um svipað leyti síðast. Ekki er heldur til eftirbreytni að skólpvatn renni reglulega í sundlaug hótelsins. 121 ferðalangar gefa þessu hóteli algjöra falleinkunn. Heimasíðan.
- Altin Orfe, Icmeler, Tyrklandi – Ekki aðeins eru herbergin hér ekki á pari við vinnubúðir erlendra verkamanna við Kárahnjúka heldur er ekki víst að herbergið sé tilbúið þegar gestir koma… klukkan þrjú að nóttu. 33 ferðalangar segja þetta hótel viðbjóðslegt. Heimasíðan.
- Cromwell Crown, London, Englandi – Súr skólpþefur í lofti, dýnurnar framleiddar hjá BM Vallá og krökkt af litlum lítið krúttlegum skordýrum á fleygiferð um öll herbergi. 127 aðilar flokka þetta hótel sem vibba dauðans. Heimasíðan.
- Corbigoe Hotel, London, Englandi – Það sem auglýst er sem lítið og sætt fjölskylduhótel er verra en allt vont. Fyrir utan slæma lykt og óhreinindi í flestum herbergjum er sérstakt gjald tekið fyrir notkun á klósettpappír og handklæðum. 138 ferðalangar vara sterklega við þessu hóteli. Heimasíðan.
- Park Hotel, London, Englandi – Bretar koma sterkt inn í lélegum hótelum og hið þriðja í röð sem fellur á lágmarkinu er þetta hér. Enn og aftur „vinalegt“ fjölskylduhótel en fjölskyldan nennir lítið að þrífa og hlustar lítt að vælið í gestum sínum. 167 ferðalangar segja þetta algjöran vibba. Heimasíðan.
Önnur hótel sem þykja rétt svo betri en að sofa í ræsinu eru:
- Hotel de Lantaerne, Amsterdam, Hollandi – Heimasíðan.
- Hotel Y Boulevard, Amsterdam, Hollandi – Heimasíðan.
- Blair Victoria & Tudor Inn, London, Englandi – Heimasíðan.
- Hotel Manofa, Amsterdam, Hollandi – Heimasíðan.
- Hotel The Globe, Amsterdam, Hollandi – Heimasíðan.









