Það var stutt gaman. Flugfélagið Wow Air mun hætta öllu flugi til og frá Kanarí, Gran Canaria, strax í lok apríl ef marka má bókunarvél félagsins. 

Stutt gaman til Kanarí með Wow Air. Mynd Wow Air

Stutt gaman til Kanarí með Wow Air. Mynd Wow Air

Þangað verður því að fljúga með öðrum en Wow Air eftirleiðis sem er miður því samkeppni er næsta engin á þessari vinsælu leið og fargjöld þangað munu vafalítið hækka um leið og Wow Air pakkar saman.

Það reyndar kemur á óvart að Wow Air leggi upp laupana þá leiðina. Þetta er geysivinsæll áfangastaður að sumarlagi og verður enn vinsælli nú þegar hryðjuverk hafa hrakið fólk frá öðrum vinsælum sólarstöðum við Miðjarðarhafið.

Sýnu mest þó vegna þess að Wow Air hóf ekki flug til Kanarí fyrr en í síðasta mánuði og því aðeins um tæplega þriggja mánaða pakka að ræða. Aldrei kom þó fram í fréttatilkynningu um málið síðasta vetur að um tímabundið flug væri að ræða.