Eins og við höfum fjallað um að undanförnu er Mallorca aftur kominn inn úr kuldanum hjá íslenskum ferðaskrifstofum. Sérstök áhersla er þar lögð á strandbæinn Santa Ponsa sem er ósköp svipaður kostur og aðrir strandbæir hér. Með einni undantekningu þó.

Helsti áfangastaður íslenskra ferðaskrifstofa á Mallorca er bærinn Santa Ponsa. Mynd Gustav Andersen

Helsti áfangastaður íslenskra ferðaskrifstofa á Mallorca er bærinn Santa Ponsa. Mynd Gustav Andersen

Ströndin við Santa Ponsa er ein fárra vinsælla stranda Mallorca sem ekki hafa fengið Bláfánavottun. Sú vottun er trygging fyrir að sjórinn við bæinn og ekki síður strandlengjan sjálf er hrein og fín og stenst lágmarksstaðla um hreinlæti á baðströndum.

Eftirsóknarvert hefur verið undanfarin tíu ár eða svo að hljóta þá vottun enda óháðir aðilar og engar brigður borið á þeirra störf.

En ólíkt öðrum vinsælum strandbæjum á Mallorca er eitthvað að koma í veg fyrir að Santa Ponsa flaggi bláfánanum. Cala d´Or er með vottun, Sa Coma, Alcudia og Cala Millor líka og allar strendur við höfuðborgina sjálfa, Palma, eru allar vottaðar.

Einhver kann að yppta öxlum yfir slíku smáræði. Það er jú ekki eins og Miðjarðarhafið sé mjög mengað eða hvað?

Það kannski setur hlutina í samhengi að burtséð frá mengun í hafinu sjálfu og burtséð frá því að hafstraumar ganga upp með Spáni og að Baleares-eyjunum þá gera yfirvöld hér út 26 báta sem hafa það eitt hlutverk að safna saman rusli úr sjónum við eyjarnar. Meðaltekjur hvern mánuð eru rúm fjögur tonn af rusli að því er fram kemur á vef umhverfisstofnunar Balearic-eyja.

Okkur kemur vitaskuld ekkert við hvert ferðaskrifstofurnar kjósa að senda viðskiptavini sína en sumir gætu hugsað sig um tvisvar áður en börnin fá að leika sér í flæðarmálinu.