Lággjaldaflugfélagið easyJet hefur lagt á borð eitt hundrað þúsund flugsæti á sértilboðsverði frá London þetta vorið. Flug aðra leið fyrir einn til fjölmargra áfangastaða fyrir rétt rúmar sex þúsund krónur.

Flug niður í sex þúsund krónur með easyJet en tveir verða að ferðast saman. Skjáskot
Sjálfsagt að skoða það fyrir þau ykkar sem hugsið ykkur til hreyfings í vor. Reyndar er flug hingað eða héðan ekki á þessu fargjaldi en leit leiðir í ljós að ódýrustu sætin héðan til Bretlands næstu mánuði kosta kringum átta til tíu þúsund krónur aðra leið án farangurs.
Sem þýðir að við komumst til staða á borð við Sofía í Búlgaríu, Olbíu á Sardiníu, Aþenu í Grikklandi og Porto í Portúgal aðra leið frá Íslandi undir 20 þúsund krónur sé enginn farangur að þvælast með.
Tilboð easyjet þó þeim takmörkunum háð að tveir þurfa að ferðast saman til að njóta lægsta fargjalds.
Við kvörtum ekkert yfir slíku 😉 Meira hér.







