Fararheill hefur um langa hríð bent fólki á þá leið til að draga úr kostnaði við ferðir og ferðalög að beina viðskiptum til ferðaskrifstofa annars staðar eins og í Bretlandi, Noregi, Danmörku eða Þýskalandi. Hjá sumum þeirra þó sá hængur á að viðkomandi verður að vera búsettur í landinu.

Hindranir alltaf yfirstíganlegar. Mynd HD Zimmerman

Hindranir alltaf yfirstíganlegar. Mynd HD Zimmerman

Nú má ekki taka okkur til fyrirmyndar en tveir úr ritstjórn hafa komist hjá þessari hindrun með því að gefa upp heimilisfangið hjá sendiráði Íslands í London.

Það er jú ekki svo að farið sé fram á heimilisfang til að senda þér ferðaskjöl af neinu tagi því það fær fólk undantekningarlaust sent með rafrænum hætti. Þetta er með öðrum orðum oftar úrelt formsatriði og þar sem fokdýr sendiráð eru til staðar til að aðstoða Íslendinga er sjálfsagt að nota þjónustuna. Nóg borgum við fyrir.

Ástæða þess að við bendum á þetta án þess að mæla með er sú að það er ekki hundrað prósent útilokað að vesen geti af þessu skapast. Það á kannski helst við ef eitthvað bjátar á í ferðinni, hún fellur niður eða annað slíkt.

En sé fólk óhrætt og vilji spara tug- eða hundruðir þúsunda á ferðalögum er þetta möguleiki. Látið ekkert á ykkur fá ef sendiráðið maldar í móinn. Það er þarna til að vinna fyrir okkur, punktur.

Hin leiðin er einfaldlega að notfæra sér ef þú þekkir einhvern á þeim stöðum sem um ræðir. Yfirleitt ekkert vandamál að fá heimilisfang lánað stundarkorn.