E inn úr ritstjórn Fararheill er nýkominn úr vikuferð til Parísar þar sem í þetta skiptið var gist í íbúð en ekki á hóteli. Reynslan alveg fyrsta flokks.
Það er sáraeinfalt að fá nóg af ópersónulegum hótelum heimsins. Jafnvel þó flest þeirra geri sig út fyrir að vera heimili að heiman er reyndin sú að laun í ferðageiranum almennt eru lág og þó þú fáir alltaf vinalegt bros í lobbíinu þá er starfsfólki almennt nokk sama um þig.
Í ofanálag kynnist fólk yfirleitt ekki mörgum á hótelum og hinar og þessar reglur í gildi sem margar eru óspennandi. Hver kannast ekki við að vakna upp fyrir allar aldir eftir gleðinótt til að ná í morgunverð í tæka tíð svo dæmi sé nefnt.
Fararheill hefur gist bæði á hótelum og íbúðum í nokkrum evrópskum borgum heims og hvergi er einfaldara að komast í kynni við fólkið á staðnum en leigja íbúð. Þær eru oftar en ekki í fjölbýlishúsum og einn dagur nægir stundum til að slátrarinn Jean eða bakarinn Antoine á götunni fyrir neðan veifi og kasti kveðju.
Það er afar misjafnt hvort íbúðaleiga er dýrari eða ódýrari en hótel. Staðsetning skiptir miklu, útsýni og hversu falleg eða vinaleg viðkomandi íbúð er. Margar þeirra mun betri í raunveruleikanum en myndir á vefnum bera með sér.
Eitt er þó víst að hvort sem um er að ræða ástfangið par eða lítinn samhentan hóp fólks þá er dvöl í íbúð mun eftirminnilegri reynsla en enn eitt hótelið.
Fararheill notaði íbúðaleiguna All Paris Apartments sem fær góða dóma á netinu og var ekki út á neitt að setja í okkar tilfelli. Mælum hiklaust með slíku fyrir aðra.
* Fjórir voru saman um íbúðina í tilfellinu hér. Um þakíbúð var að ræða með litlum svölum með útsýn til Sacre Cour, hvítu kirkjunnar, og líf á götum í kring. Verðmiðinn 147 þúsund krónur sem skiptist niður á fjóra. Finna má allnokkrar íbúðirnar líka á gistibókunarvef Fararheill hér að neðan.








