Seint koma sumir en koma þó. Stjórnvöld í Egyptalandi eru sögð æf yfir næstum ársgömlu myndbandi sem tekið var við píramídana frægu við Giza en þar berar ung rússnesk stúlka brjóst sín trekk í trekk.

Þessi er líklega ekki velkomin til Egyptalands á ný. Skjáskot
Myndbandið hefur verið á vef YouTube um nokkurra mánaða skeið en komst í sviðsljósið þegar bandarísk fréttastöð sló því upp fyrir skömmu með fyrirsögninni að um klámmyndatöku hefði verið að ræða.
Samkvæmt fréttum líta stjórnvöld í Kaíró þetta grafalvarlegum augum og litið svo á að verið sé að smána þjóðargersemar Egypta. Hafa þarlend stjórnvöld gengið svo langt að kvarta við rússnesk stjórnvöld vegna málsins.
Myndbandið er þó fjarri því að vera klámmynd af nokkrum toga og nær því ekki einu sinni að vera ljósblá nema hjá því fólki sem telur konubrjóst hinn viðbjóðslegasta hlut. Hún virðist aðeins hafa verið að stríða kærasta sínum með myndavélina fremur en nokkuð annað.
https://www.youtube.com/watch?v=iQS5mmYerhk







