Það þarf líklega engar kannanir til að gera sér í hugarlund að eitt það allra versta við ferðalög að mati fólks hljóta að vera miklar tafir og seinkanir á flugferðum. Það eru reyndar til ítarlegar skýrslur sem sanna að svo sé en það segir sig líka bara sjálft. Enginn er að ferðast til að eyða tímanum til einskis eða njóta arkitektúrs í flugstöðvarbyggingum.

Um jólahátíðina eru meiriháttar tafir á helmingi allra flugferða til og frá Heathrow

Um jólahátíðina eru meiriháttar tafir á helmingi allra flugferða til og frá Heathrow

Þess vegna er kannski ekki sniðugasti hlutur í heimi að vera neitt á flugi um jólahátíðina. Allavega ekki ef flogið er til eða frá helstu flugvöllum Bretlands sem eru jú mikið notaðir af þeim flugfélögum sem hingað til lands fljúga.

Það sýnir sig nefninlega að jólavertíðina fyrir ári síðan urðu alvarlegar tafir og truflanir á nánast helmingi allra ferða til eða frá Heathrow og Gatwick. Tafir á flugi þar engar nýjar fréttir en það er jú verra um jólin en annars. Á Heathrow fyrir jólin 2013 voru aðeins 51% véla sem lentu og héldu brott á réttum tíma samkvæmt tölum Flightright. Í Gatwick hlutfallið örlítið skárra eða 54 prósent. Það er geysihátt hlutfall enda eru þetta tveir aðalflugvellir landsins.

Það er því kannski óvitlaust ef einhver skyldi eiga flug næstu dægrin eða milli jóla og nýárs frá þessum tveimur völlum að gefa sér strax að það gæti orðið lengri bið en venjulega og kannski ekki síður að þolinmæði er dyggð.